Upplifðu afl nýrrar kynslóðar rafgeyma!
LFP(LiFePO4) rafgeymarnir okkar eru hannaðir til að þola. Þeir eru með líftíma yfir 10 ár, 100% hleðslu og afhleðslu og þúsundum hleðsluhringja. Með innbygðum hitara og blátönn eru þessir rafgeymir traustur félagi í öllum aðstæðum. Þyngd LFP rafgeyma er um 1/3 af þyngd sýrugeyma og þarfnast ekki viðhalds allan sinn líftíma nema að hlaða eftir þörfum og því fullkomnir fyrir allt frá bátum og húsbílum til heimilisins. Hleðslutím er stuttur þökk sé lágu innra viðnámi. Hleðsla frá 0% í 100% gerist á skömmum tíma og sem dæmi þá er hægt að hlaða 12V/400Ah(5,7kW) rafgeymi á 4 tímum með 100A hleðslutæki á 10A 230V AC tengli.
Helstu kostir og notagildi
LiFePO4 (LFP)
Langlífi
Yfir 10 ára líftími og þúsunda hleðsluhringja.
Hraðhleðsla
Hlaðist frá 0% í 100% á skömmum tíma.
Öryggi
Innbyggður hitari og vörn gegn hitahlaupi tryggir örugga notkun.
Léttur
Auðvelt í uppsetningu og flutningi.
100% afhleðsla
Nýttu alla orku rafgeymisins.
Handfæra og línubátar
Engin þörf á að pína vél til að hlaða úti á miðum heldur er öll hleðsla með landrafmagni.
Húsbílaeigendur
Ferðast í frelsi með ótakmarkaða orku fyrir allan þitt tækjabúnað.
Sumarbústaðir
Örugg og umhverfisvæn varaafl fyrir sumarbústaðinn.
Heimili
Minnka orkukostnað og gerðu heimilið sjálfbærara.
DIY-áhugamenn
Byggðu þina eigin neyslugeyma með okkar sveigjanlegu LFP (LiFePO4) rafgeymi.
Örugg og öflug orka fyrir alla þarfir.
